Skýrsla um eftirfylgni: Útflutningsaðstoð og landkynning.
(1205006)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
25.03.2014 | 39. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Skýrsla um eftirfylgni: Útflutningsaðstoð og landkynning. Kristín Kalmansdóttir og Þórir Óskarsson frá Ríkisendurskoðun komu á fund nefndarinnar og ræddu svar utanríkisráðuneytis við fyrirspurn nefndarinnar og stöðu málsins. Formaður lagði til að ráðuneytið yrði upplýst um afstöðu Ríkisendurskoðunar og umfjöllun nefnarinnar um málið lokið. Var það samþykkt. |
11.03.2014 | 37. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Útflutningsaðstoð og landkynning - skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirfylgni. Formaður gerði nefndinni grein fyrir svarbréfi utanríkisráðuneytis um hvernig brugðist hefði verið við ábendingum í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Samþykkt að senda svarbréfið til Ríkisendurskoðunar og óska eftir afstöðu stofnunarinnar til þess. |